Jæja hvað er í gangi! Klukkan er 1:52 PM (13:52 + 8 klukkustundir fyrir ykkur) og ég var að kveðja fjölskilduna mína á Skype eftir að ég horfði á þau opna jólagjafirnar og http://www.weather.com segir að það sé 23°c hiti úti!!! Algjörlega nýtt fyrir mér að hafa 23°c hita úti á aðfangadag en ég á ekki von á því að það fari að snjóa í eyðimörkinni á næstu dögum 😉
Það er að verða komin vika síðan ég lennti hérna úti á John Wayne flugvellinum og hefur nú ekki mikið gerst síðan þá svo ég hef nú ekki frá miklu að segja að þessu sinni. Ég var búinn að hugsa mikið um það hvort ég hefði eitthvað við svona blogg rugl að gera þegar ég mundi flytja hingað út og niðurstaðan var alltaf “nei til hvers, ég á Facebook” En að sjálfsögðu er ég ekkert með alla á facebook og ekkert allir eiga facebook (t.d. Amma) svo þetta er nokkuð góð leið til þess að vera í bandi við ykkur. Ég ætla að reyna að gera mitt besta til þess að uppfæra þessa síðu og láta ykkur heyra hvað er að gerast hjá mér og setja inn myndir af þessum frábæra stað til þess að draga ykkur öll í heimsókn til mín einn daginn.
En hvað hefur gerst síðan ég kom.
Síðan ég lennti hefur ekkert merkilegt gerst í rauninni. Við fórum í world gym og sáum þar einn asnalegasta “bodybuilder” mexicana í heiminum! Félaginn var í bol sem var svo efnis lítill að hann hefði getað slept því að vera í honum og stuttbuxum sem voru styttri en þær sem íslenska landsliðið í handbolta notaðist við fyrir 30 árum. Þetta world gym var ekkert merkilegt, frekar sóðalegt og mjög “getto” þar sem þarna voru bara mexicanar og asíubúar.
Kötturinn okkar fór í geldingu í vikunni og verðum við að hugsa um hann eins og smákrakka næstu 7-14 dagana en það er víst lítið mál þar sem við förum ekkert að vinna strax.
Við fórum smá rúnt gegnum götu sem kölluð er Candy Cane Lane þar sem allir íbúarnir skreyta eins og enginn sé morgundagurinn og var það ekkert eðlilega flott.
Ég ætla að yfirgefa ykkur núna með myndum frá Candy Cane Lane og vona að ég hafi eitthvað merkilegra að segja ykkur í næstu færslu sem verður vonandi fljótlega.



