Ég hef verið að hugsa óendanlega mikið um þetta upp á síðkastið þegar ég hef verið að tala við fólk bæði hérna í USA og heima á Íslandi og fannst ég verða að skella þessu á blað fyrir ykkur öll hvort sem þið eigið barn/börn eða eigið frábæra foreldra eins og við systkini mín.
Ég er tækja, græju og hluta sjúklingur ég vill eiga það besta eyða ótrúlegum peningum í hluti sem ég hef EKKERT að gera við þannig séð og finnst æðislegt að kaupa mér nýja hluti og þá alltaf af BESTU gerð þó það kosti mig margföld mánaðarlaunin mín t.d. bíl upp á margar miljónir þegar ég hefði getað komist af með Toyota Corolla ’97, Myndavél fyrir stjarnfræðilegar upphæðir þegar ég kunni ekki einusinni að taka myndir. En það sem ég hef séð betur og betur núna undanfarið er hvað þessir hlutir gera mig ekki að betri persónu og gera mig heldur ekkert merkilegri fyrir fólkið í kringum mig það sem hefur gert mig að þeirri persónu sem ég er í dag eru ákvarðannir sem ég hef tekið og foreldrar mínir fyrir að stýra mér alltaf í rétta átt þegar ég er að gera vitleysislega hluti. En ég ætla nú ekki að fara út í neitt bull um að þið þurfið ekki hluti eða ættuð ekki að vera eyða peningum í hluti í þessari færslu heldur langar mig að tala um það hvað það er “Priceless” að eiga æðislega foreldra og systkin sem styðja við bakið á manni.
Priceless í mínum huga er í raun að geta ekki sett verðmiða á hlutina.
Pabbi og mamma hafa alltaf verið með nokkuð sanngjarnt uppeldi á okkur systkinunum sem ég kannski sá ekki alltaf þegar ég var að alast upp og þá sérstaklega þegar ég var óþolandi unglingur með mótþróa og leiðindi. Pabbi okkar er ótrúlegur maður á svo margan hátt og hann getur nánast allt sem honum langar, svo lengi sem það tengist ekki tölvum haha;) Pabbi er í raun allt mugeligt mand hann smíðar, gerir við bíla, flísaleggur vesenast í rafmagni getur teiknað og útskrifast með iðnmenntun 59 ára gamall, ekki eru allir sem geta sagt það. Eitt sem pabbi var duglegur að gera alveg þangað til ég fór var að leifa mér eða byðja mig að vera partur af því þegar hann hefur verið að gera þessa hluti OG ÞAR KEMUR ÁSTÆÐAN FYRIR ÞESSARI FÆRSLU Ég hef verið að tala við fólk og það er að segja mér ohh mig langar svo að gera þetta og hitt t.d. smíða hluti, laga einfalda hluti, skipta um bremsur á bíl og fleira í þá áttina og fólk getur ekki gert þessa hluti en vegna þess að ég á pabba sem virðist annaðhvor hafa ótrúlega þolinmæði til þess að læra eða er eins og ég of þrjóskur til þess að gefast upp og útaf því hef ég lært að gera hitt og þetta þó svo ég eigi mjög langt í land að geta gert sömu hluti og hann þegar kemur að þessum málum en ég get bjargað mér og það er bara því að hann tók með sér í margt sem hann gerði heima.
Og Mamma ekki má gleyma henni, er eitthvað að trufla þig eða er eitthvað flókið…spurðu mömmu virkar alltaf og mamma hefur svarið. Þetta hljómar kjánalega en mamma hefur kennt mér ýmislegt líka sem ekki allir menn á mínum aldri geta gert þetta sá ég vel með suma vini mína t.d. það að strauja, setja í þvottavél og baka! Ég gleymi því seint þegar ég stóð í eldhúsinu heima hjá góðum vini mínum sem er landsþekktur einstaklingur og þegar þetta var að gerast var hann 26 ára eins og ég er í dag og ég var 21 árs. Við voum á leiðinni í partý og hann tók skyrtu út úr skápnum sínum henti henni á strauborðið og nuddaði straujárninu yfir hana og klæddi sig í og hún var krumpaðari en hún var þegar hann tók hana út úr skápnum, ég tók af honum skyrtuna og 3 mín seinna var hann í vel pressaðari skyrtu, hann leit á mig mig furðulegu glotti og sagði “hvar í fjandanum lærðiru þetta?” MAMMA! auðvelt svar! Og þó svo það hafi nú ekki sést á herberginu mínu nema 1-2x á ári þá hef ég sem betur fer lært eitthvað af því að mamma hefur stöðuga þörf fyrir hreinlæti og má ég þakka guði fyrir það því ekki er til sú kona á þessari jörðu sem mundi nenna að hafa mig kringum sig ef ég væri alltaf sami sóðinn og ég er þegar ég er einn.
Þetta eru hlutir sem ekki verða settir í verð og enginn gæti sett í verð því þegar við förum að búa ein og lifa lífinu án þess að hafa mömmu og pabba til þess að gera allt fyrir okkur þá er enginn sem gerir þetta nema við sjálf og það að kunna þetta er ómetanlegt. Ef þú átt börn aldrei gleyma því að það sem þú kannt, hversu venjulegt sem þér finnst það þá gæti það auðveldað barninu þínu lífið þegar það verður eldra og get ég aldrei þakkað mömmu og pabba nógu vel fyrir það sem þau hafa kennt mér gegnum þessi 26 ár sem ég hef lifað og veit ég að þau munu halda áfram að kenna mér hvert sinn sem ég hitti þau. Og þó svo kunnáttan við að smíða, strauja, þvo þvott eða laga bremsur á bíl geta hjálpað mér mun ekki neitt koma í staðin fyrir þau lífsgild sem foreldrar mínir og systur mínar hafa kennt mér. Njótið jólana og munið að fjölskyldan er ALLT sem skyptir máli alla daga ársins ekki bara þessa viku sem þið eruð öll saman á jólunum!
America Out!




Já það er satt Villi minn, fjölsyldan er allt. Pössum vel upp á hana